þriðjudagur, janúar 23, 2007

Ér að hlustaá : Death Cab For Cutie
Plata: Plans
Lag: What Sarah Said

Ég er á lífi. Hef bara ekki nennt að blogga:OP

Just know that I´m happy:O)

fimmtudagur, desember 28, 2006

Kaffi bad, kaffi bad, kaffi very very bad......

Drakk 1/2 kaffibolla áðan, maginn minn sagði þá "What! what do you men, I don´t want coffe, now I will make you suffer, I will make you suffer like you have never sufferd before"

Kaffín í sínu hreinasta formi er afskaplega beiskt, hvítt duft. Hvítt duft segiru.... dóp!

Þetta þurfa allir að vita:

Venjulegur kaffibolli inniheldur 100 til 200 milligrömm af koffíni og skyndikaffi (espresso) um 100 milligrömm. Afar mismuandi kaffínmagn getur verið í tei eða frá 20 til yfir 100 milligrömm í hverjum tebolla. Magn kaffíns í kakói er hins vegar um 5 milligrömm í bolla. Í lítilli kókdós (33 sentilítrar) er magn koffíns allt að 100 milligrömm, eða á við einn kaffibolla. Kaffínpillur innihalda vanalega jafn mikið koffín og einn kaffibolli hver.

"Þetta segir mér ekkert voða mikið, veit ekki hvort 100 milligrömm af koffíni sé ofsalega mikið, medium eða lítið"

Kaffín er talið verka á heilann með því að blokka adenósín viðtaka. Þegar adenósín tengist raftaka taugafrumu hægir það á virkni hennar. Slíkt gerist t.d. í svefni. Kaffínsameindin getur bundist viðtökunum og þannig hindrað adenósín í að komast að þeim, sem merkir að ekki getur hægst á virkni frumunnar. Í kjölfarið seytir fruman adrenalíni sem veldur m.a. auknum hjartslætti og blóðþrýstingi, auknu blóðflæði til vöðva og minni til húðar og innri líffæra. Auk þessa eykur kaffín magn taugaboðefnisins dópamíns í heila. Kaffín hverfur fljótt úr heilanum og, öfugt við t.d. áfengi, eru áhrif þess skammvinn. Kaffín truflar ekki einbeitingu (sumir segja þvert á móti) og annað hugarstarf.

"Þannig að ef ég myndi drekki kaffi með reglulegu millibili yrði ég aldrei þreitt, áhugavert..... SúperAldís"

Mikil neysla kaffíns getur valdið tilhliðrun. Þegar inntöku þess er svo hætt er líkaminn ofurnæmur fyrir adenósín sem veldur því að blóðþrýstingur fellur mikið og sem leiðir til höfuðverkjar ásamt öðrum einkennum.

"Kannski ekki sniðugt....... Ef maður myndi drekka kaffi með vissu millibili (and become SúperAldís) á hverjum degi í mánuð og hætta svo allt í einu, gæti maður þá dáið úr hausverk, er hægt að deyja úr hausverk?"

Of mikil neysla kaffíns getur leitt til vímu. Einkenni þess eru m.a. eirðarleysi, taugaveiklun, svefnleysi, niðurgangur og meltingartruflanir. Þessi einkenni geta komið fram eftir aðeins 250 milligrömm. Meira en 1 gramm á dag getur leitt til vöðvakippa, sundurlausra hugsana og tals auk hjartsláttartruflana. Kaffíneitrun getur leitt til einkenna sem líkjast felmstursröskun (panic disorder) og almennri kvíðaröskun.

"Vissi ekki að það væri hægt að fá kaffíneitrun, meikar alveg sens eins og áfengiseitrun....... "

Held ég haldi mig frá Kaffinu í bili....

sunnudagur, desember 24, 2006

Gleðileg jol

Gleðileg jól þú sem ert að lesa, hver sem þú ert:O)

Afríka: Gesëende Kersfees
Afríka/ Eritrea/ : Rehus-Beal-Ledeats
Albanía: Gezur Krislinjden
Arabía: Idah Saidan Wa Sanah Jadidah
Argentína: Feliz Navidad
Armenía: Shenoraavor Nor Dari yev Pari Gaghand
Malasía: Selamat Hari Natal
Brasilía: Boas Festas e Feliz Ano Novo
Búlgaría: Tchestita Koleda; Tchestito Rojdestvo Hristovo
Chile: Feliz Navidad
Kína: (Cantonese) Gun Tso Sun Tan'Gung Haw Sun
Kína: (Mandarin) Kung His Hsin Nien bing Chu Shen Tan
Korsíca: Pace e saluteKróatía: Sretan Bozic
Tékkland: Prejeme Vam Vesele Vanoce a stastny Novy Rok
Danmörk: Glædelig Jul
Holland: Vrolijk Kerstfeest en een Gelukkig Nieuwjaar! or Zalig Kerstfeast
England: Merry Christmas
Eskimóar: (inupik) Jutdlime pivdluarit ukiortame pivdluaritlo!
Esperanto: Gajan Kristnaskon
Eistland: Ruumsaid juulup|hi
Færeyjar: Gledhilig jol og eydnurikt nyggjar!
Finnland: Hyvaa jouluaFrakkland:Bon Noel
Þýskaland: Froehliche Weihnachten
Grikkland: Kala Christouyenna!
Hawai: Mele Kalikimaka
Hebreska: Mo'adim Lesimkha. Chena tova
Hindi: Shub Naya Baras
Ungverjaland: Kellemes Karacsonyi unnepeket
Indonesía: Selamat Hari Natal
Írak: Idah Saidan Wa Sanah Jadidah
Írland: Nollaig Shona Dhuit, or Nodlaig mhaith chugnat
Ísland: Gleðileg jól
Ítalía: Buone Feste Natalizie
Japan: Shinnen omedeto. Kurisumasu OmedetoKórea: Sung Tan Chuk Ha
Latína: Natale hilare et Annum Faustum!
Lettland: Prieci'gus Ziemsve'tkus un Laimi'gu Jauno Gadu!
Litháen: Linksmu Kaledu
Makedónía: Sreken Bozhik
Malta: LL Milied Lt-tajjeb
Máritanía: Shub Naya Varsh
Noregur: God Jul, or Gledelig JulPapua
Nýja Gínea: Bikpela hamamas blong dispela Krismas na Nupela yia i go long yu
Perú: Feliz Navidad y un Venturoso Año Nuevo
Fillipseyjar: Maligayan Pasko!
Pólland: Wesolych Swiat Bozego Narodzenia or Boze Narodzenie
Portúgal: Feliz Natal
Rúmenía: Sarbatori vesele
Rússland: Pozdrevlyayu s prazdnikom Rozhdestva is Novim GodomSamar: Buorrit Juovllat
Sardinía: Bonu nadale e prosperu annu nou
Serbía: Hristos se rodi
Slóvakía: Sretan Bozic or Vesele vianoce Vesele Vianoce. A stastlivy Novy Rok
Slóvenía: Vesele Bozicne. Screcno Novo Leto
Spánn: Feliz Navidad
Svíþjóð: God Jul and (Och) Ett Gott Nytt År
Thaíland: Sawadee Pee Mai
Tyrkland: Noeliniz Ve Yeni Yiliniz Kutlu Olsun
Úkraína: Srozhdestvom Kristovym
Víetnam: Chung Mung Giang Sinh
Júgóslavía: Cestitamo Bozic

Ég fékk rosalega góðan mat, æðislegan ís og stórfenglega pakka! Hvernig var aðfangadagurinn þinn?

fimmtudagur, desember 21, 2006

Jol

Ér að hlustá: Sarah McLachlan
Plata: Wintersong
Lag: Have Yourself A Merry Little Christmas

"Have Yourself A Merry Little Christmas" er uppáhalds jólalagið mitt ever ever ever ever!

Jólin nálgast eins og óð fluga! Jólagjafi eru enþá ókeyptar og jólaskrautið enþá í kassa uppí skáp. jólaskapið er í biðstöðu þar sem það er enþá að bíða eftir prófstressinu, prófstress er hell en jólaskapið kemur vanalega þegar þeim lýkur, fór samt í danspróf þannig að jólaskapið er að læðast fram.
Er voða fegin að snjórinn hafi náð að gabba ratsjái veðurmanna og ætli að koma okkur á óvart á aðfangadag með hlussusnjókornum sem svífa hægt og rólega til jarðar og leggjast á allt undir berum himni. Ég vil trúa því og skal halda áfram að trúa því sem ég vill!
Langar út í snjóbuxum, úlpu, vettlingum, húfu og trefil með snjóbretti undir arminum og gríðalega stórt bros. Fara í brekku, detta milljón sinnum í mjúkan snjóinn og hlægja óstjórnlega mikið. Fara svo heim sæl með að hafa getið farið niður brekkuna í heilu lagi.

Gleðileg jól öll! hó hó hó

miðvikudagur, desember 13, 2006

I wish I had a river I could skate away on

Ér að hlustá: Sarah McLachlan
Plata: Wintersong (Christmas)
Lag: River

Logan loves Veronica so much and she loves him but still they can´t be together. That sucks.

Eitt próf á morgun...... Samt án efa skemmtilegasta próf sem ég hef farið í eða mun fara í réttara sagt því augljóslega er ég ekki búin að fara í prófið ef það er á morgun.

Hugsanir:
-Sigga er að koma heim
-Berglind er að koma heim
-Allir að koma heim um jólin
-Hlakka til jóla
-Hlakka til að borða góðan mat
-Hlakka til að sitja í sófanum undir sæng í sparifötunum södd og sæl með familíunni
-Ekki búin að kaupa eina jólagjöf
-Á ekki jólaföt
-Vona að það verði hvít jól
-Lífið er eins og konfektkassi, þú veist alrei hvað þú munt fá
-Vinir og Familía skiptir meira máli en peningar
-Vil ferðast um heimin
-Vil xxxxxxx
-Vil hafa nægan tíma til að gera allt
-Vil knúsa alla sem mér þykir vænt um
-Vil fara að sofa
-Pési er sætasta kisa í heimi
-Vil fara á skauta
-Hef aldrei smakkað jólaglögg
-Fólk fer yfirum í jólainnkaupum
-Næsta ár verður stórfenglegt
-augnok þyngjast....þyngjast.......þyngjast.......zZzZzZzZ...z......z.z.....z....zz......zz..z..zzz...zz..z....z........z..z...zz.....

Nýji síminn minn er æði og meira æði og mesta æði af öllum símum






Teddy segir hæ




Gleðileg jól allir, farið vel með ykkur.

miðvikudagur, desember 06, 2006

Eg atti afmæli i gær

Fékk stóran búnka af afmæliskveðjum í gær.

Takk fyrir:O)

Afmælisdagurinn var bara þæginlegur,
Fór með Guðrúnu Lilju að borða í hádeginu, fékk meira að segja klukkutíma matarhlé í stað 30 mín, reyndar var það því að maturinn kom ekki fyrr en svo seint:OP en klukkutími er klukkutími.....
Það var sungið fyrir mig á ballettæfingu, voða flott hjá stelpunum.
Mamma eldaði rosalega góðan mat, lax með rosalega góðri sósu, salati og bondabrie í forrétt og lambalæri með sósu og gratineruðum kartöflum. Takk mamma mín þetta var yndislega góður matur. Svo fengum við okkur ís, nammi namm.

Fékk afmælisgjöf frá mömmu og pabba, set mynd af henni inn seinna.

laugardagur, desember 02, 2006

Rockstar og Bootcamp

Fór á Rockstar tónleikana í gær með Guðrúnu Lilju og við skemmtum okkur svona konunglega vel, sungun, dönsuðum, hoppuðum, stöppuðum og kölluðum.
Það komu móment sem maður var orðin pínu þeyttur í byrjum þegar Josh var að syngja en svo kom stuðið á mannskapinn. Það er yndi að láta eins og maður vill á svona mómentum, það eru hvort sem er allir að horfa á sviðið en ekki hvað manneskjan við hliðina á manni er að gera, ok kannski pælir maður pínu í því ef manneskjan við hliðina á manni er eitthvað geðveik en þið vitið hvað ég á við.....

Við G. Lilja skelltum okkur á Bootcamp æfingu í dag eða í gær réttara sagt, úff klukkan orðin margt..... Anyways.... Það var engin smá áreynsla, en við vorum ofsa, ofsa duglegar miðað við fyrsta tíman, svo var gaurinn sem stjórnaði þessu voða nice, var alltaf að tékka hvort við værum enþá á lífi;O) Fólk ætti að gera það oftar, labba að einhverjum á kaffihúsi " er allt í lagi með þig? Ok flott". Væri pínu fríkí.

Góða nótt.