Framkvæmdir o.fl.
Jæja þá er búið að taka dúkin af gólfinu niðiri, kasta steypu á gólfið, saga fyrir hitaleiðslur og leggja þær í, hella meiri steypu og tengja leiðslurnar!!!! Við erum sko að leggja flísar niðiri fyrir þá sem ekki vissu. Það var ALLT útí ryki og hávaðinn var gífurlega mikill en þetta hafðist að lokum og nú á bara eftir að leggja flísarnar á gólfið (held ég).
Ó jeminn!!! það á eftir að vara fróðlegt að sjá mig í H&M þegar allar nýju vörurnar koma!!! Ég er búin að skoða bæklinginn svo oft að hann er orðin slitinn. Á engann pening til að kaupa en vona samt að fynna það nauðsynlegasta, Jakka og kannski buxur og nokkra boli og það væri fínt að fynna peysur og náttföt og nærföt og íþróttaföt og bikiní og sokka og töskur, verst að þeir framleiða ekki skó.....
Það er svo fyndið hvað tónlist hefur óendalega mikil áhrif á mann. Ætli maður hlusti á sorglega tónlist því að maður er sorgmætur eða er maður sorgmætur því að maður hlustar á sorgmæta tónlist og það sama með happy tónlist og allar hinar tilfiningarnar. Þetta er pæling.......

