mánudagur, júní 27, 2005

Ér að hlustá: Lifehouse
Plata: Lifehouse [ENHANCED]
Lag: You And Me

Já ég gleymdi víst að benda á að ungfrú Björk Ellertsdóttir átti heiðurinn á kjúklingaupskriftinni sem var borðuð á laugardaginn seinasta:O) Hún er svo sniðug hún Björk og við þökkum henni allar fyrir þessa frábæru hugmynd!:O)

Það er ekkert mikið að gerast í dag enda er mánudagur................ Það var jú mæling hjá þjálfaranum í dag og ég er svo hræðilega óþolinmóð að það er ekkert að gerast nógu snögglega hjá mér, kílóin fara bara ekki nógu fljótt og fituprósentan lækkar ekki nógu hratt og ef þið haldið að ég ætla að uppljóstra einhverjum tölum hérna þá eruð þið voða voða fyndin!!...........;O)

Hey það komu myndir

Vei iPod

Ér að hlustá: The Dandy Warhols
Plata: Welcome To The Monkey House-AD
Lag: We Used To Be Friends

Oooooooog Aldís er að fara að fá iPodinn sinn þegar Heiða kemur:O) vei ég er svo happy Heiða að koma og ég fæ loks minn langþráða iPod!!!!! En mig hlakkar samt meira til að sjá Heiðu, Bjarna og alla hina litlu grislingana;O)

Það var gegt gaman um helgina, við Guðrún, Sigga og ég elduðum geðveikt góðar kjúklingabringur meða Pesto með sólþurkuðum tómötum, fetaosti, sveppum, tómötum, ofl... og salat og hrísgrjón..... mmmmmmmm nammi gott!!!! svo komu fleira fólk og við fórum ekki í bæinn fyrr en kl 2:30 því að það var svo gaman hjá okkur:O) Svo fórum við heim til Lilju (Guðrúnar Lilju) að kvöldinu loknu og vöknuðum um morguninn og fengum okkur hollann og góðan morgunmat...... hamborgara og kók;O)

Hey svo er ég að fara í útilegu næstu helgi og er búin að kaupa stól og alles fyrir ferðina;O) Það verður örugglega ekkert smá gaman, það er svo gaman í útilegum:O) Gítar, grill, klífa fjöll, bjór og svo má halda lengi áfram..........

Ég er að fara að fá iPod nenenenenene.............

sunnudagur, júní 19, 2005

Laugardagara eru æði

Ér að hlustá: Coldplay
Plata: X & Y
Lag: White Shadows

Ég, Sigga og Guðrún fórum í ræktina kl 11 á Laugardeginum og ég hljóp, ekki mikið samt bara 5,6 km:O/ En........ ég hleyp bara meira á mánud;O)
Svo fórum við í Smáralind því að ég var frekja og ég keypti mér einn íþróttar, einn hversdags og einn fínan bol:O) gott dagsverk, þetta minnti mig á gömlu dagana þegar ég kom eiginlega aldrei heim með tómar hendur úr bænum....... Við fórum heim til Guðrúnar, Tinna E. var þá komin í hópinn og við eða Guðrún og Tinna réttara sagt elduðu gegt gott Burritos og við borðuðum gegt góðan mat og drukkum góða drykki með;O) Fórum í singstar og Guðrún fagnaði svo ógurlega mikið að hún sló út rafmagninu á götunni ( smá ýkjur en.... ég meina það hefði kannski getað gerst) nei nei sjónvarpið og einhver ljós duttu bara út og við ákváðum þá að tími til komin væri að fara í bæinn að tjútta:O) Fórum út í bílskúr, fundum rauða málingu og máluðum bæinn rauðann........

Ég er gegt södd........

Ég og Lilja (Guðrún Lilja) horfðum á Alfie áðan og mér fanst hún bara nokkuð góð, vissi eiginlega ekkert við hverju ég átti að búast en hún kom mér bara skemmtilega á óvart........ Svo ef hún hefði verið slæm þá hefði maður bara setið og horft á Jude Law og þá verður hún strax aðeins betri;O)

miðvikudagur, júní 15, 2005

Vá seinasti laugardagur var geðveikt skemmtilegur!!
Hann byrjaði með því að ég vaknaði og fór að taka smá til áður er ferðinni var heitið í ræktinna með Guðrúnu Lilju. Eftir ræktina var hún svo yndisleg að nenna að fara með mér í IKEA og kaupa risastóra mynd fyrir tóma vegginn minn:O) Hún keypti sér nú líka mynd en fattaði svo að hún kemst ekki á neinn vegg inní í herberginu hennar.... æ...æ.....
Ok síðan brunuðum við í kringluna þar sem ég keypti mér bol til að vera í í veislunni hennar Hildar, ég var voða fín í bolnum og pilsi:O) Hildur keypti sér líka gegt fínan kjól og var eins og fínasta dama..... Svo var veisla sem þróaðist í djamm og niðrí bæ, by the way takk Davíð:O). Það var úberstuð í bænum og ég hitti Guðrúnu og við dönsuðum gegt mikið og hittum gegt skemmtilegt fólk, svo fór Guðrún heim og ég og Ingi máluðum bæinn rauðann....hahahaha.....

Heiða kemur heim bráðum og ég hlakka geðveikt mikið til!!!!! Hlakka svo til að sjá þau... Svo fæ ég þá nýja ökklahlíf, ekki veitir af, fyrir þá sem hafa séð aökklahlífina mína nýlega skilja hvað ég er að tala um...... og iPod!!!!!! kannski fæ ég loks minn langþráða iPod! Já Aldís eyddu aðeins meiri pening áður en þú ferð út... alltaf er ég svo sniðug í peningarmálum...........

Það er alveg ótrúlegt hvað ég er búin að vera með mikið ritflæði undanfarið... Ég skrifað Heiðu gegt langt bréf sem tíndist svo áður en ég sendi það... urrr var gegt pirruð í smá stund og ákvað svo að byrja uppá nýtt og skrifaði þá bara annað sæmilega langt bréf. En ég ætla ekki að vera að skrifa eitthvað fullt fullt núna því að ég veit að maður nennir ekkert að vera að lesa svona mikið á bloggunum hjá fólki..... Kannski nennið þið því og það er bara fínt því að ég er greinilega ekkert að fara að hætta að skrifa.... hættu.... hættu.... núna.... Aldís..... ok bara smá í viðbót...

Það er alveg algerlega dæmigert að Wig Wam kemur akkurat að halda tónleika þegar ég er að fara út á land!!!! Ég fer í eina útilegu í sumar (líklegast) og þeir þurftu endilega að koma þá og halda tónleika....... ojæja

þriðjudagur, júní 14, 2005

Batteríslaus yfir dagin og vinnuproblem!!!!

Jæja nú vil ég byðja þá afsökunnar sem reyndu að ná í mig í dag því að ég varð bara batteríslaus um kl 13:00 og býst ekki við því að komast heim til mín fyrr en mikklu seinna í kvöld.

Ég er ekki að fatta hina vinnunna mína. Sko ég hringdi í Mr. G í seinustu viku og þá sagði hann mér að einhver ný stelpa þyrfti að taka seinni vaktirnar á þriðjudögum og ég sagðist ekki komast á þær fyrri út af vinnu og þá sagði hann "ok ég læt þig vita ef þú þarft að vinna næsta þriðjudag" og ég bara "ok" með það...... Svo hringi ég í dag í hann svona til öryggis og hann segir "nú ætlaru ekki að mæta"...... Ég er nefnilega að fara á fund í leikskólanum í kvöld og það er meðal annars verið að fara að ræða hópinn minn, þá verð ég auðvitað að vera viðstödd:O/ Þannig að Mr. G sagði ok og það varð það. Æi hann er nú yndisklegur kallinn:O)
Svona er það að vera í tveimur vinnum..... Vona bar að ekkert lendi á Davíð eða Aðalbjörgu... gegt skemmtileg vinkona eitthvað að vera að henda öllu á þau, en þetta var eitthvað svo mikið rugl og ég veit ekki hvort að ég átti að vinna eða ekki, hefði auðvitað átt að hringja fyrr og tékka en...... ohhh vona að þau þurfi ekki að vinna!!!!!!!!

föstudagur, júní 10, 2005

Það er veisla hjá okkur á morgun því að hún Hildur stóra systir er að fara að útskrifarst úr Háskólanum í Reykjavík:O) Ég er ekkert smá stollt af henni!!!!!!! Hún er dúleg stúlka. Vildi samt hálfparinn að hún væri ekki að útskrifast því að hún er að fara út til Danmerkur í ár og maður á nú eftir að sakkna stelpuskátunnar ansi mikið. En lífið heldur áfram og maður verður víst að flökta með því...............

Verð að taka til og undirbúa allan fösudaginn og laugardaginn fram að veislunni..... Svo á Laugardagskvöldið verður sko slett ærlega mikið úr klaufunum;O)

Ble ble..........

laugardagur, júní 04, 2005

Sveitaferð og Singstar

Ér að hlustá: Wig Wam - Norway
Plata: Eurovision 2005
Lag: In My Dreams

Fór með Aðalbjörgu í Singstar í gær svo kom Davíð og við drifum okkur í townið:O)
Við fórum á 11na, Sólon og svo á Kofan:O) Við fórum inn á Sólon báðum um Wig Wam, In my dreams (Norska Eurovisionlagið) og hundskuðumst svo út! Og...... svo eins og vanalega þá var tekin mynd af okkur þar inni!! HVAÐ ER MÁLIÐ!!! En hey, það er ekki eins og mér líki eitthvað illa við myndavélar;o)
Við Davíð stoppuðum svo á Shell og keyptum okkur nammi:O) vei.............

Fór áðan með leikskólanum upp í sveit. Það var geðveikt gaman! Fékk að leika mér við hvolpa, kettlinga, lömb, geitur, börn og fullt, fullt meira, mjög, mjög gaman. Við grilluðum síðan pylsur í sólinni:O)
Það er búiða að vera brjálað gott veður núna undanfarið!! Gegt gaman:O) Svo á að koma rigning eftir helgina:O(

Núna undanfarið er ég búin að vera mjög vinsæl hérna heima fyrir, ekki það að ég hafi verið eitthvað óvinsæl neitt sko, en allavega ég vann nefnilega Eurovisionplötuna 2005 í útvarpinu þegar Eurovisionhelgin var og það er búið að vera mjög vinsælt að spila Wig Wam HÁTT á morgnanna;O) Það er þá skárra að vakna við það heldur en ABBA!!!! urrrrrr.......

Hey var að fatta að námið sem ég komst í Laban ( dansskólanum) er ekki það sem allir komast í, sem þíðir að ég má vera geðveikt montin:O) múhahahahahah....... eða ég er ekki viss um hvort þetta sé það sem allir komast í eða ekki, held samt ekki en er ekki alveg viss, en ætla bara að hlada að þetta sé ekki það sem nærrum allir komast í svo ða ég geti verið geggjað montin;OP Þetta er Professional diploma in dance studies, þar er kennt t.d.
= Classical Ballet Technique
= Community Studies
= Issues of Dance Culture
= Dance in Education
= 21st Century Dance
= Labanotation
= Physical Theatre
= Contact Improvisation
= Jazz Dance Technique
= Laban Workshop
= Music for Dance
= Pilates-based Body Conditioning
= Repertory
= Teaching Dance Technique
= Teaching Studies

Ohh mig langar ekkert smá að fara út og læra þetta í ár en ég ætla fyrst að klára grunninn í upplýsinga- og fjölmiðlafræði:O(